Ferðin hefst hjá BaseCamp

BaseCamp eru grunnbúðir þar sem reynsla fagmanna kemur saman til að hjálpa þér við að koma þínum hugmyndum í framkvæmd. Undanfarin ár hefur BaseCamp sérhæft sig í lifandi dagskrárgerð. Við höfum verið með beinar útsendingar fyrir Sjónvarpið á Gettu betur, Söngvakeppni Sjónvarpsins og Söngkeppni framhaldsskólanema. Við höfum líka verið með beinar útsendingar fyrir Skjá Einn á Ungfrú Reykjavík og Ungfrú Ísland. Auk þess höfum við framleitt ýmsa þætti fyrir bæði Sjónvarpið og Skjá Einn. Nú síðast var stórt verkefni fyrir Skjá Einn þar sem við framleiddum íslensku útgáfuna á "Singing Bee". Það er 10 þátta sería sem var tekinn upp í september og verður svo sýnt í haust. Grunnur okkar liggur samt í Sjónvarpsauglýsingum og höfum við alltaf sinnt því þegar spennandi verkefni banka uppá. Ef þú heldur að við getum hjálpað þér þá endilega hafðu samband í síma 5 610 610 og við setjum upp grunnbúðir fyrir þig.